Freyja finnur eiturlyf
Í fyrrakvöld lenti ungur ökumaður á tvítugsaldri, á norðurleið í umferðaróhappi skammt sunnan við Blönduós. Lenti hann útaf veginum, fór eina veltu í bifreiðinni en var ómeiddur og bifreiðin ekki mikið skemmd. En ýmislegt í fari ökumanns vakti grunsemdir lögreglunnar og var ákveðið að kanna bakgrunn hans nánar.
Var hann færður á lögreglustöðina á Blönduósi þar sem að hann gaf sýni sem gaf til kynna að hann væri að aka undir áhrifum fíkniefna. Aðspurður um hvort að hann hefði fíkniefni meðferðis, kvað hann svo ekki vera og við fyrstu athugun fannst ekkert athugavert hjá honum eða í bifreiðinni.
Var ákveðið að Freyja, fíkniefnahundur lögreglunnar á Blönduósi, myndi þá leita í bifreiðinni svo að lögreglumenn hefðu þá örugglega leitað af sér allan grun um að nokkuð væri í bifreiðinni. Skömmu eftir að leit hófst hjá Freyju, gaf hún til kynna að fíkniefni gætu verið falin innan í innréttingu bifreiðarinnar svo að lögreglumenn þurftu að leggja í þó nokkra vinnu við að fylgja eftir vísbendingum frá henni en Freyja gaf sig ekki með það að þarna væru fíkniefni falin.
Sú vinna skilaði heldur betur árangri því að þegar að búið var leita af sér allan grun lágu eftir nokkrir plastpokar fullir af kannabisefnum. Áætlað magn er um 300 grömm. Og telst þetta með stærri málum sem að lögreglan á Blönduósi hefur upplýst. Ljóst er að fíkniefnahundurinn Freyja skipti sköpum í uppljóstrun þessa máls og eru lögreglumenn í skýjunum yfir þessum árangri.
Ökumaðurinn var í yfirheyrslum fram eftir nóttu en hefur nú verið sleppt úr haldi. Þó eru ýmsir þættir málsins enn í rannsókn. Ljóst er að fíkniefni þessi voru ætluð til sölu og dreifingu á Akureyrarsvæðinu.