Friðrik Ómar og Jogvan í Blönduóskirkju í kvöld

http://www.youtube.com/watch?v=joIrXDSqiJM  

Þeir félagar Friðrik Ómar og Jógvan Hansen hafa verið á tónleikaferðalagi um landið í sumar. Í kvöld fimmtudaginn 21. júlí, ætlar þeir að heimsækja Blönduós og halda tónleika í Blönduóskirkju. Á dagskránni eru íslensk og færeysk dægurlög.

Plata þeirra félaga, Vinalög, hefur slegið í gegn og var mest selda plata ársins 2009 en platan inniheldur íslensk og færeysk dægurlög. Núna eru þeir komnir saman aftur og ætla að flytja lög af plötunni auk ýmissa laga sem eru í uppáhaldi hjá þeim.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og verða miðar seldir við innganginn. Miðaverð er kr. 2000.-

Fleiri fréttir