Friðrik Snær sigraði Stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar

Þátttakendur í Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkjar fór fram í FNV í gær. Mynd/FNV
Þátttakendur í Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkjar fór fram í FNV í gær. Mynd/FNV

Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkjar fór fram í FNV í gær en keppnin hefur nú verið haldin árlega í 19 ár. Í fyrsta sæti var Friðrik Snær Björnsson, Varmahlíðarskóla, í öðru sæti var Þorri Þórarinsson, Árskóla og í þriðja sæti var Jón Örn Eiríksson, Grunnskólanum austan Vatna.  

Á fésbókarsíðu FJölbrautaskólans segir að undankeppni stærðfræðikeppninnar hafi farið fram í mars og tóku nemendur frá Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 17 nemendur í úrslitakeppnina. Af þeim voru þrír frá Árskóla, þrír frá Varmahlíðarskóla, þrír frá Grunnskólanum Austan Vatna, tveir frá Húnavallaskóla, tveir frá Höfðaskóla, einn frá Grunnskóla Fjallabyggðar og þrír frá Dalvíkurskóla

Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni FNV, MTR, grunnskóla, stofnana og fyrirtækja á Norðurlandi vestra auk þess sem fyrirtæki utan kjördæmisins koma að verkefninu. Kennarar í stærðfræði við FNV báru hitann og þungann af samningu og yfirferð keppnisgagna, en grunnskólarnir sáu um fyrirlögn dæmanna í undankeppninni. Verðlaunin voru vegleg voru að vanda.

Fleiri fréttir