Friðsamleg mótmælastaða á morgun við HSB

Á morgun þriðjudaginn 26.október halda þingmenn Norðvesturkjördæmis árlegan fund með fulltrúum sveitarstjórna í Félagsheimilinu á Blönduósi. Starfshópur HSB ætlar að nota tækifærið og mæta þar milli kl. 12:30 og 13:00 í friðsamlega mótmælastöðu vegna þess harkalega niðurskurðar sem boðaður er á fjárlögum til heilbrigðisþjónustu í Austur Húnavatnssýslu.

Í tilkynningu frá starfshópnum er skorað á Húnvetninga að standa saman og leggja sitt að mörkum til að verja þessa grunnþjónustu. -Þótt við, starfsmenn í heilbrigðisþjónustu, skipuleggjum mótmælin skiptir miklu máli að allir sem láta sig varða öryggi skjólstæðinga heilbrigðisþjónustunnar komi og taki þátt. Við vitum að þingmenn kjördæmisins standa almennt með okkur en þeir þurfa líka að vita að við munum eftir hlutverki þeirra á Alþingi, segir í tilkynningunni sem lýkur með því að segja að ekki sé verra að koma með mótmælaspjöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir