Frístundakort á Skagaströnd
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
19.11.2010
kl. 13.58
Sveitastjórn Skagastrandar samþykkti á síðasta fundi sínum að bjóða frístundakort sem nemi allt að 15 þúsund króna styrk fyrir hvert grunnskólabarn sem tekur þátt í íþrótta og æskulýðsstarfi. Ákvörðun um frístundakort gildir frá 1.september 2010 til 31. ágúst 2011.
Frístundakortin munu ná til starfsemi íþróttafélaga auk hverskonar skipulagðs félags- og tómstundastarfs sem stendur í sex vikur eða lengur og greitt er fyrir með þátttökugjaldi. Þar að auki gildir kortið fyrir aðra tómstundaiðkun, s.s. tónlistar- og listnám. Síðasti greiðsludagur vegna tímabilsins er 15. september 2011