Frjálsíþróttamót USAH innanhúss í dag og á morgun

Innanhúsmót USAH í frjálsum íþróttum verður í dag, 4. júní og morgun, 5. júní og hefst keppni kl. 17 báða dagana. „Við vonumst til að allir mæti með baráttuhuginn og góða skapið í farteskinu,“ segir í auglýsingu frá mótanefnd í nýjasta eintaki Gluggans.

Mótið er opið fyrir alla 10 ára og eldri (börn fædd 2002 og fyrr) og keppt verður í langstökki og þrístökki án atrennu, kúluvarpi, hástökki og 30m spretthlaupi. „Skráning verður á staðnum svo keppendur mæti tímanlega,“ segir í auglýsingu.

Keppnin í dag verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi, þar sem 14 ára og eldri keppa í öllum greinum og krakkar 10-13 ára keppa í spretthlaupi. Á morgun verður keppt íþróttahúsinu á Skagaströnd og munu þá 10-13 ára þreyta keppni í restinni af sínum greinum.

 

Fleiri fréttir