Fuglaskoðunarhús sett niður á Einarsnesi

Einarsnesið á Blönduósi hefur fengið nýtt hlutverk en þar var sett niður nýtt fuglaskoðunarhús í gær, skv. frétt á Húna.is. Húsið er rúmir 20 fermetrar að stærð og var smíðað af iðnnemum Fjölbrautarskólans á Sauðárkróki í vetur.

Var húsið smíðað undir verkstjórn Páls Marteinssonar kennara og til stendur að byggja verönd við það á staðnum. Úr því verður hægt að fylgjast með fuglalífi við Blöndu og verða settar upp upplýsingar um fuglalíf á svæðinu en rúmlega 50 fuglategundir hafa fundist við og á Blöndu síðustu árin.

Húsið var flutt yfir Þverárfjall í gærmorgun á vörubíl Kristjáns Kristóferssonar en um framkvæmd á svæðinu sáu þeir Stefán Pálsson og Páll Marteinsson og sáu þeir um að koma húsinu fyrir á undirstöðum.

Fleiri fréttir