Fundir Landssamtaka landeigenda á Íslandi
Landssamtök landeigenda boða til opinna funda um hagsmunamál landeigenda á morgun föstudaginn 19. október 2012. Fundirnir verða haldnir í Sjálfstæðissalnum á Blönduósi kl. 13:30 og í Félagsheimilinu Ásbyrgi kl. 20:30.
Á fundunum mun Örn Bergsson, formaður Landssamtaka landeigenda fjalla um ýmis hagsmunamál landeigenda og lögfræðingarnir Ólafur Björnsson og Sigurður Jónsson fjalla um þjóðlendumál og kröfur ríkisins í landssvæði í Húnavatnssýslum.
Í stuttu máli er þjóðlendukröfum lýst þannig af hálfu fjármálaráðherra:
Í hluta Skagafjarðarsýslu og Austur-Húnavatnssýslu er gerð krafa til svokallaðs Almennings á Skagaheiði, afréttarsvæðis sem liggur á miðri Skagaheiði og afmarkast af merkjalýsingum aðliggjandi jarða. Almenningur á Skagaheiði liggur í Austur-Húnavatnssýslu að vestan en Skagafjarðarsýslu að austan og innan sveitarfélaganna Skagabyggðar, Skagastrandar og Skagafjarðar. Þá er gerð krafa til samliggjandi svæða Staðarafréttar, Höskuldsstaðaafréttar og Skrapatunguafréttar sem liggja í Sveitarfélaginu Skagafirði og Blönduósbæ, sem og við Húnavatnshrepp.
Í Vestur-Húnavatnssýslu er gerð krafa til svokallaðrar Breiðabólsafréttar (Engjabrekkuafréttar) sem er afrétt er liggur á miðju Vatnsnesinu og afmarkast af merkjalýsingum aðliggjandi jarða. Breiðabólsafrétt liggur í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra.
Í Austur-Húnavatnssýslu er gerð krafa til Sauðadals, sem afmarkast af Vatnsdalsfjalli að vestan og Svínadalsfjalli að austan, og liggur í sveitarfélaginu Húnavatnshreppi.
Í hluta Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu aðgreinir þjóðlendukröfulínan heimalönd frá afréttarsvæðum og nær yfir Auðkúluheiði, Forsæludalskvíslar, Grímstunguheiði, Haukagilsheiði, Víðidalstunguheiði, Núpsheiði, Húksheiði, Aðalbólsheiði og Staðarhreppsafrétt (Óspaksstaðadal) allt suður til öræfa, að mörkum kröfulýsingarsvæða á miðhálendinu. Austan megin liggja kröfusvæðin í Húnavatnshreppi og vestan megin í Húnaþingi vestra.
Nákvæma afmörkun og yfirlitskort er að finna á heimasíðu óbyggðanefndar obyggdanefnd.is