Fundur um heimavinnslu matvæla
Óli Þór Hilmarsson sérfræðingur hjá Matís heldur erindi um hvað þarft til heimavinnslu matvæla, leyfismál, ferla og fleira. Hann segir einnig frá reynslu þeirra sem farið hafa í slíka framleiðslu. Óli Þór hefur stutt við litlar matarsmiðjur víðs vegar um landið og er sérfræðingur á sviði vinnslu og vöruþróunar.
Á fundinn mætir einnig Þorsteinn R. Þorsteinsson bóndi í Vallakoti í Suður – Þingeyjarsýslu en hann og kona hans eru með heimavinnslu afurða samhliða sínum búskap. Mun hann segja frá þeirra reynslu og fyrirkomulagi sameiginlegrar matarsmiðju sem þar er rekin.
„Hvetjum alla til að mæta á fróðlegan fund um nýbreytni og möguleika í framleiðslu landbúnaðarafurða. Notum þetta tækifæri til að ýta undir hugmyndir sem víða blunda um ný tækifæri í landbúnaði, ferðaþjónustu, handverki og auknu samstarfi innan héraða. Krafturinn er víða – nú er að virkja hann“, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum fundarins á Húna.is.