Fundur um málefni hrossaræktarinnar

Sameiginlegur fundur Fagráðs í Hrossarækt, Landssambands Hestamannafélaga (LH) og Ráðgjafarmiðstöðvar Landbúnaðarins (RML) um málefni hrossaræktar og hestamennsku verður haldinn í Búnaðarsambandssalnum á Blönduósi, að Húnabraut 13, miðvikudaginn 19. febrúar 2014 og hefst kl 20:30.

Frummælendur verða Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda; Haraldur Þórarinsson formaður LH og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML.

Heimild: Fréttabréf Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, 1. tbl. 2014.

Fleiri fréttir