Funi – tónleikar á Þingeyrum laugardagurinn 4. júní
Funi, sem eru þau Bára Grímsdóttir, Chris Foster og Andri Eyvindsson, halda tónleika í Þingeyrakirkju þann 4. júní kl. 15:00. Þeim til aðstoðar er Kór Undirfells -og Þingeyrasókna. Á efniskrá tónleikanna eru gömul og ný lög sem tengjast Vatnsdalnum. Kvæðin eru mörg eftir Vatnsdælinga sem bjuggu í dalnum á síðustu öld, þar á meðal föður Báru, Grím Lárusson og ömmu, Péturínu Jóhannsdóttur.
Bára, Chris og Andri syngja og leika á gítar, langspil, klarinett og kantele (borðhörpu). Lögin eru einkum þjóðlög, sum eftir Báru, sem sá um útsetningar.
Eftir tónleikana verður opnuð myndlistasýning í Klausturstofu og boðið upp á kaffiveitingar.
Verð á tónleikana er kr. 2.000.-
Opnun myndlistasýningar.
Sama dag, eftir tónleikana verður opnuð sýning með málverkum Ingólfs Björgvinssonar myndlistamanns á Klausturstofu á Þingeyrum. Myndirnar vann hann við atburði Vatnsdæla sögu og voru þær gefnar út á Sögukorti Vatnsdæla sögu árið 2009. Sýningin opnar í kjölfar tónleika sem verða haldnir í Þingeyrakirkju fyrr um daginn.
Boðið er upp á kaffi að loknum tónleikum og sýningaropnun.
Styrktaraðilar tónleikanna og sýningarinnar eru Menningarráð Norðurlands vestra og SAH Afurðir ehf.
/Fréttatilkynning
