Fylgi flokkanna á landsvísu – Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði á landsvísu og mælist með 26,7% fylgi þar á eftir kemur Framsóknarflokkurinn með 24,4%. Stjórnarflokkarnir tapa miklu fylgi frá síðustu kosningum en Samfylkingin hlaut nú 12,9% atkvæða og Vinstri-græn 10,9%. Ætla má að Björt framtíð sem fékk 8,3% atkvæða hafi lokkað einhverja frá Samfylkingunni og aðrir sem áður studdu Vinstri-græna hafi halað sé að einhverjum litlu framboðanna. Píratar eru nýir á Alþingi og komust með naumindum yfir þröskuldinn með 5,1% atkvæða og þar með þrjá þingmenn.
Aðrir flokkar komu mönnum ekki á þing að þessu sinni en þeir eru:
- Dögun 3,1%
- Flokkur heimilanna 3,0%
- Lýðræðisvaktin 2,5%
- Hægri-grænir 1,7%
- Regnboginn 1,0%
- Landsbyggðaflokkurinn 0,2%
- Alþýðufylkingin 0,1%
- Húmanistaflokkurinn 0,1%
- Sturla Jónsson 0,1%
Samkvæmt Rúv.is skiptast þingsætin sem hér segir:
Norðvesturkjördæmi
- 1) Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki,
- 2) Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki,
- 3) Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokki,
- 4) Haraldur Benediktsson, Sjálfstæðisflokki,
- 5) Guðbjartur Hannesson, Samfylkingu,
- 6) Elsa Lára Arnardóttir, Framsóknarflokki,
- 7) Jóhanna María Sigmundsdóttir, Framsóknarflokki,
- 8) Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri-grænum.
Norðausturkjördæmi
- 1) Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Framsóknarflokki,
- 2) Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki,
- 3) Höskuldur Þór Þórhallsson, Framsóknarflokki,
- 4) Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri-grænum,
- 5) Líneik Anna Sævarsdóttir, Framsóknarflokki,
- 6) Valgerður Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
- 7) Kristján L. Möller, Samfylkingu,
- 8) Þórunn Egilsdóttir, Framsóknarflokki ,
- 9) Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri-grænum,
- 10) Brynhildur Pétursdóttir, Bjartri framtíð.
Suðurkjördæmi
- 1) Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki,
- 2) Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki,
- 3) Silja Dögg Gunnarsdóttir, Framsóknarflokki,
- 4) Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
- 5) Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki,
- 6) Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu,
- 7) Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki,
- 8) Haraldur Einarsson, Framsóknarflokki,
- 9) Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki,
- 10) Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð.
Suðvesturkjördæmi
- 1) Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki,
- 2) Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki,
- 3) Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
- 4) Árni Páll Árnason, Samfylkingu,
- 5) Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokki,
- 6) Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki,
- 7) Guðmundur Steingrímsson, Bjartri framtíð,
- 8) Ögmundur Jónasson, Vinstri-grænum,
- 9) Vilhjálmur Bjarnason, Sjálfstæðisflokki,
- 10, Þorsteinn B. Sæmundsson, Framsóknarflokki
- 11) Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingunni,
- 12) Birgitta Jónsdóttir, Pírötum,
- 13) Elín Hirst, Sjálfstæðisflokki.
Reykjavíkurkjördæmi suður
- 1) Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
- 2) Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki,
- 3) Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingu,
- 4) Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki,
- 5) Svandís Svavarsdóttir, Vinstri-grænum,
- 6) Róbert Marshall, Bjartri framtíð,
- 7) Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki,
- 8) Karl Garðarsson, Framsóknarflokki,
- 9) Helgi Hjörvar, Samfylkingu,
- 10) Jón Þór Ólafsson, Pírötum,
- 11) Óttarr Proppé, Bjartri framtíð.
Reykjavíkurkjördæmi norður
- 1) Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki,
- 2) Frosti Sigurjónsson, Framsóknarflokki,
- 3) Katrín Jakobsdóttir, Vinstri-grænum,
- 4) Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni,
- 5) Brynjar Þór Níelsson, Sjálfstæðisflokki,
- 6) Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð,
- 7) Sigrún Magnúsdóttir, Framsóknarflokki,
- 8) Árni Þór Sigurðsson, Vinstri-grænum,
- 9) Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki,
- 10) Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírötum,
- 11) Valgerður Bjarnadóttir, Samfylkingu.