Fyrirlestrar sem tengjast Hólum

Nokkrir fyrrirlestrar verða haldnir hér á landi á næstunni sem tengjast Hólum á einhvern hátt.Í dag, mun Grzegorz Kwiatkowski flytja erindi í Háskólanum á Hólum sem hann kallar Innovation Ability in Rural Tourism Industry. Fyrirlesturinn hefst kl. 14:30 í stofu 303. Þá hefur Camille A. Leblanc á undanförnum árum lagt stund á doktorsnám, við Oregon State University og Háskóla Íslands. Rannsóknir sínar á laxfiskum hefur hún m.a. unnið undir handleiðslu Skúla Skúlasonar og að töluverðu leyti í Verinu á Sauðárkróki.

Camille varði doktorsritgerðina ytra nú í sumar, en í dag kl. 16:00 flytur hún fyrirlestur sinn hér á landi, nánar til tekið kl. 16:00 í stofu 132 í Öskju Háskóla Íslands. Umfjöllunarefnið er mikilvægi eggjastærðar fyrir fjölbreytileika hjá laxfiskum.

Mánudaginn, 24. október kl. 14:00 verður á vegum Ósýnilega félagsins, fyrirlestur í Hátíðasal Hólaskóla undir yfirskriftinni Staða lundastofnsins á Íslandi 2011. Þar mun Erpur S. Hansen fjalla um rannsóknir á íslenska lundastofninum og meðal annars velta upp hugmyndum varðandi slakan varpárangur lundans í Vestmannaeyjum undanfarin sjö ár.

Loks má svo benda á örráðstefnuna, Tækifæri í norðurljósunum?, þar sem þemað verður hlutverk gagnrýnna rannsókna í ferðaþjónustu. Ráðstefnan verður haldin í Hátíðasal Háskóla Íslands, fimmtudaginn 27. október kl. 17:00 - 18:00. Meðal frummælenda verður Guðrún Helgadóttir, með örerindið Frumþörf fisksins er vatnið.

Allir eru velkomnir á þessa viðburði.

Fleiri fréttir