Fyrirlestur um Gladmat hátíðina í Stavanger

Eins og undanfarin ár stendur ferðamáladeild Hólaskóla - Háskólans á Hólum fyrir röð opinna fyrirlestra. Alls verða fjórir slíkir haldnir fyrir áramót, hinn fyrsti miðvikudaginn 11. september kl. 11:15 - 12:00.

Fyrirlesarinn að þessu sinni er Reidar Mykletun, prófessor við háskólann í Stafangri í Noregi. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og ber yfirskriftina „The making of Gladmat – the largest food festival in the Nordic Region“.

Í fyrirlestrinum mun Reidar fjalla um Gladmat-hátíðina í Stafangri - hvernig hún varð til, hvernig hún hefur þróast og byggst upp og ýmislegt fleira henni tengt.

Fryrirlesturinn verður í stofu 303 á heima á Hólum, en einnig útvarpað um fjarfund til Akureyrar (stofu N201 í HA) og Reykjavíkur (stofu 310 í Árnagarði).

Næstu fyrirlestrar verða svo miðvikudagana 9. október, 6. nóvember og 4. desember.

Fleiri fréttir