Fyrsta harmónikuhátíð sumarsins
Harmónikufélögin Nikkólína og Harmónikuunnendur í Húnavatnssýslum halda fyrstu harmónikuhátíð sumarsins dagana 15. - 17. júní nk., í félagsheimilinu Ásbyrgi í Miðfirði. „Þetta er hátíð fyrir alla fjölskylduna. Góð aðstaða er á tjaldsvæðinu við félagsheimilið fyrir gesti hátíðarinnar,“ segir í frétt á Húna.is.
Hljómsveit Sveins Sigurjónssonar spilar á föstudagskvöld, en Harmónikufélagið Nikkólína á laugardagskvöld. „Við viljum hvetja unga fólkið til að koma líka og æfa sig að dansa við pabba og mömmur, afa og ömmur, því hjá Harmónikuunnendum er alls ekkert kynslóðabil,“ segir á Húnahorninu.
Miðaverði er stillt í hóf aðeins 5.000 krónur fyrir helgina á mann (dans og aðstaða).
12 ára og yngri fá frítt. Kaffisala verður á staðnum.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Ásgerði í símum 434-1502/866-5799 og Sólveigu í símum 452-7107/856-1187.