Fyrsta í búð Bústaðar hses. afhent

Leigufélagið Bústaður hses. afhenti nýlega fyrstu íbúðina að Lindarvegi 5a á Hvammstanga. Leigufélagið Bústaður hses., sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir, auglýsti sex íbúðir að Lindarvegi 5a til leigu í nóvember.
Alls bárust sextán umsóknir og hefur öllum íbúðunum verið úthlutað, fyrsta íbúðin var afhent á föstudaginn og verða hinar fimm afhentar hver af annarri frá miðjum janúar.
Það voru þau Najeb Mohammad Alhaj Husin og Sabah Mostava sem tóku við lyklunum að fyrstu íbúðinni úr hendi formanns stjórnar Bústaða hses., Ingveldi Ásu Konráðsdóttur.