Fyrsti laxinn kominn á land í Blöndu

Fyrsti lax sumarsins sem veittur er í Blöndu var dreginn að landi í Damminum kl.12 í gærdag.

Það var Hermann Svendsen sem landaði laxinum en hann var líka sá veiðimaður sem landaði fyrsat laxinn í Blöndu í fyrra. Laxinn tók í Damminu og er líklega u 8 – 10 pund, nýgenginn og fallegur.

Laxveiðitímabilið hófst í Blöndu í gærmorgun og voru veiðimenn mættir á slaginu kl.7 til að hefja veiði. Aðstæður til veiða eru ekki góðar, mikið vatn eftir leysingar og áin lituð. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir