Fyrsti laxinn kominn í Hrútafjarðará
Fyrsti laxinn veiddist í Hrútafjarðará í morgun en það var veiðimaðurinn Halldór Óli Halldórsson sem veiddi fiskinn. Opnunar hollið sem skartaði meðal Ara Þórðarsyni veiddi 5 bleikjur og var sú stærsta rétt fimm pund.
Á Pressan.is segir að Ari hafi hrundið af stað átakinu ,,Stórlaxar sleppa stórlöxum" en þess hafi ekki þurft núna en það verði örugglega seinna sem hann þurfi að sleppa stórlaxi. Eitthvað er komið af fiski í ána sem er frekar vatnslítil þessa dagana.
11 laxa opnun í Svartá
Svartá í A-Hún opnaði mjög vel sl. sunnudag, 11 laxar komu á land og var greinilegt að hann er löngu kominn í ána, segir á Lax-á.is.
Laxarnir veiddust nokkuð víða, allt frá Bakkahyl sem er frekar ofarlega í ánni og niður í Ármót, staðir eins og Bakkahylur, Brúnarhylur, Krókeyrarhylur, Kringla og Ármót voru að gefa. Kringlan var sterkust með 4 laxa.
„Þetta er ein allra besta byrjun sem við munum eftir í Svartá, en þetta kemur ekkert á óvart miðað við laxgengd á svæðinu. Við eigum lausar stangir um næstu helgi í ánni, nánari upplýsingar má finna á www.agn.is eða með því að senda póst á spall@lax-a.is“, segir á Lax-á.is