Gandur framleiðir smyrsli úr minkafitu - Fyrsti þáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla

Í fyrsta þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla er rætt við Ásdísi Sigurjónsdóttur, Einar E. Einarsson og Sólborgu Unu Pálsdóttur á Syðra-Skörðugili í Skagafirði sem framleiða smyrsl og leðurfeiti úr minkafitu undir vörumerkinu Gandur. /Skjáskot úr myndbandi.
Í fyrsta þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla er rætt við Ásdísi Sigurjónsdóttur, Einar E. Einarsson og Sólborgu Unu Pálsdóttur á Syðra-Skörðugili í Skagafirði sem framleiða smyrsl og leðurfeiti úr minkafitu undir vörumerkinu Gandur. /Skjáskot úr myndbandi.

Nú er kominn í loftið fyrsti þátturinn í röð nýrra netþátta á FeykirTV sem bera yfirskriftina Fyrirmyndarfrumkvöðlar. Í þættinum er rætt við þau Ásdísi Sigurjónsdóttur, Einar E. Einarsson og Sólborgu Unu Pálsdóttur á Syðra-Skörðugili í Skagafirði.

Þau standa að framleiðslu smyrsla og leðurfeiti úr minkafitu undir vörumerkinu Gandur. Greina þau meðal annars frá því hvernig hugmyndin kviknaði, mikilvægum stuðningi Matís við verkefnið, leitinni að réttu umbúðunum, samstarfi við myndlistarnemendur um hönnun vörumerkis og yfirstandi framkvæmdum við aðstöðu fyrir framleiðsluna.

Um er að ræða sjö þætti. Í þáttunum er rætt við forsvarsmenn frumkvöðlafyrirtækja á Norðurlandi vestra. Í fyrstu sex þáttunum er fyrirtæki heimsótt og farið er yfir starfsemina, allt frá hugmynd til framleiðslu, og viðmælendur inntir eftir því hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvernig staðið er að hinum ýmsu þáttum starfseminnar. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf.

Eru þeir framleiddir af Feyki og Skottu kvikmyndafjelagi, sem njóta styrkjar frá Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra til þáttagerðarinnar. Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttastjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson. 

Fleiri fréttir