Gæruhljómsveitir - Blind Bargain

Blind Bargain verður á meðal hljómsveita sem stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Gærunni þann 15. til 17. ágúst nk.

 

Hvernig myndu þið lýsa tónlistinni þinni/ykkar?

Við spilum mestmegnis blues-skotið rokk. Við sækjum áhrif í allskonar tónlist og tónlistarstefnur, en spilum bara nákvæmlega það sem okkur finnst skemmtilegt og hljómar vel.


Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?

Síðustu helgi vorum við að spila á Goslokahátíð hérna í Vestmannaeyjum. Okkur var boðið að spila uppi á þaki á verslun hér í bæ, og okkur fannst það frábær hugmynd. Við komum á staðinn og stillum upp og allt leggst þetta voðalega vel í okkur, nema það að veðrið hér í bæ er oft svolítið óútreiknanlegt og það var þónokkuð rok úr öllum áttum. Þegar við vorum að klöngrast upp á þak til að byrja að spila, þá hrundi trommusettið niður af þakinu, öll statíf ultu og við enduðum á að teipa allt niður, fengum strák til að sitja uppi á þaki með okkur til að halda í trommurnar, en spiluðum ágætis tónleika og skemmtum okkur vel.

 
Hvernig leggst það í ykkur að spila á Gærunni 2013?

Við erum rosalega spennt að koma að spila á Gærunni. Það er alltaf gaman að koma út á land, og gaman að svona lopapeysu stemningu og kósýheitum. Sunnu finnst líka sérstaklega spennandi að koma, þar sem hún ólst upp á Skagaströnd.

 
Hvað er á döfinni hjá ykkur?

Við erum að gefa út lag sem ætti að vera tilbúið á næstunni. Svo erum við líka að fara að spila á Þjóðhátíð í Eyjum í Ágúst. Þar fyrir utan er fullt of öðru í bígerð, sem er ekki alveg neglt ennþá.

Fleiri fréttir