Gæruhljómsveitir - Funk that shit
Funk that shit verður á meðal hljómsveita sem stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Gærunni þann 15. til 17. ágúst nk.
Hvernig myndir þú/þið lýsa tónlistinni þinni/ykkar?
Við spilum það sem að er kallað “instrumental” funk tónlist sem lætur þig langa til að dillla þér með.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá þér/ykkur?
Því miður eigum við enga nógu skemmtilega sögu til að segja frá, enda ekki búnir að vera mjög virkir undanfarið ár.
Hvernig leggst það í þig/ykkur að spila á Gærunni 2013?
Það leggst mjög vel í okkur og mikil tilhlökkun.
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur?
Dusta rykið af funkinu og kíkja svo á Gæruna.