Gæruhljómsveitir - Hymnalaya
Hymnalaya verður á meðal hljómsveita sem stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Gærunni þann 15. til 17. ágúst nk.
Hvernig mynduð þið lýsa tónlistinni ykkar?
Erfitt að segja, kannski bara svona nokkuð vinaleg.
Hefur einhvern tíman eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
Já, já oft, en einu sinni vorum við að spila á tónleikum í forsætisráðherrabústaðnum og Einar söngvari ætlaði að nota tækifærið og koma upplýsingum til forsætisráðherra og hélt smá ræðu en forsætisráðherran var ekki mættur og þetta var svona hálf pínlegt. En mjög skemmtilegt eftir á.
Hvernig leggst það í ykkur að koma fram á Gærunni 2013?
Við erum bara mjög spennt og hlökkum mikið til að koma!
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Við vorum að gefa út frumburð okkar Hymns núna 10. júlí sl. á vegum Record Records sem við erum mjög spennt og ánægð með. Í framhaldi af því er bara tónleikahald hér heima og vonandi erlendis í vetur.