Gæruhljómsveitir - Sometime
Sometime verður á meðal hljómsveita sem stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Gærunni þann 15. til 17. ágúst nk.
Hvernig myndir þú/þið lýsa tónlistinni þinni/ykkar?
Sometime spilar raf popp með einhverntímann áhrifum.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá þér/ykkur?
Ekki svo við munum en fullt annað bull, en við treystum á að Gæran verði algjört rugl. Við viljum fólk skríðandi á gólfinu.
Hvernig leggst það í þig/ykkur að spila á Gærunni 2013?
Okkur hlakkar hrikalega mikið til :) þetta verður æði!
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur?
Við ætlum að kynna nýjustu plötuna okkar Acid Make-Out, sem við höfum eiginlega ekkert verið að gera á íslandi. Við erum líka að gera stuttmynd sem fylgir henni og verður frumsýnd á þessu ári. Við erum einnig byrjuð að vinna næstu plötu, þannig að það er nóg að gera hjá Sometime.