Gamla kirkjan fær ekki niðurfellingu fasteignagjalda
Óskað hefur verið eftir því að Blönduósbær komi til móts við aðstandendur gömlu kirkjunnar, sem lagt hafa mikið af mörkum undanfarin ár við endurnýjun og viðhald hennar, með því að fella niður fasteignagjöldin næstu fimm árin.
Byggðaráð tók málið fyrir í síðustu viku og var ákveðið að hafna erindinu þar sem umsækjandi ætlar að hefja atvinnurekstur í viðkomandi fasteign. Á sama fundi var tekin fyrir umsögn um leyfi til að reka gististað í flokki I í Gömlu kirkjunni að beiðni sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Veitti byggðaráðið jákvæða umsögn fyrir sitt leyti.