Gamlar kirkjur í Húnaþingi fá styrki úr Húsfriðunarsjóði

Húni segir frá því að Blönduóskirkja eldri, Svínavatnskirkja og Vesturhópshólakirkja eru á meðal verkefna sem hlotið hafa styrki úr Húsfriðunarsjóði fyrir árið 2011.Blönduóskirkja eldri sem byggð er árið 1894 og Svínavatnskirkja sem byggð er árið 1882 fengu 500 þúsund króna styrk hvor og Vesturhópshólakirkja sem byggð er árið 1877 fékk 350 þúsund króna styrk.

Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.

Fleiri fréttir