Garðfuglahelgi Fuglaverndar 26. - 29. janúar

Silkitoppur og skógarþröstur.
Silkitoppur og skógarþröstur.

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar hefst í dag og stendur fram á mánudaginn 29. janúar. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.

Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn. Þá er hann skráður sem 1 fugl ekki 4. Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður rafrænt á vef Fuglaverndar​ www.fuglavernd.is 

Í tilkynningu frá Fuglavernd segir að ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá sé gott að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir