Garðyrkjuskóli Íslands stofnaður

Stofnað hefur verið félagið Garðyrkjuskóli Íslands af starfandi fagfólki í garðyrkju sem flest hefur verið eða er í forsvari fyrir hagsmunafélög í greininni. Tilgangur félagsins er að standa að faglegri og vandaðri fræðslustarfsemi á sviði garðyrkju og tengdra greina. Forsvarsfólk félagsins hefur óskað eftir viðræðum við menntamálaráðherra í því skyni að leita samninga um grunnnám í garðyrkju með svipuðum hætti og gert hefur verið varðandi nám á framhaldsskólastigi, svo sem í Kvikmyndaskóla Íslands, Ljósmyndaskóla Íslands, Fisktækniskóla Íslands og Tækniskóla Íslands.

Félagið leggur áherslu á að fræðsla og formleg menntun í garðyrkju verði framkvæmd í sem bestu samstarfi við atvinnulífið og starfandi aðila á viðkomandi sviði. Markmiðið með fræðslu og menntun skal vera að búa nemendur sem best undir fjölbreytt störf á sviði garðyrkju og tengdra greina eða áframhaldandi nám. Jafnframt miðar starfsemi félagsins, fræðslan og námið að því að efla almennan áhuga, þekkingu og þátttöku í ræktun og skyldri starfsemi með víðtækum hætti. Ætlunin er að halda félagsfund og bjóða starfandi garðyrkjufólki til þátttöku þegar aðstæður leyfa, vegna smitgátar.

Nánari upplýsingar veita eftirtaldir stjórnarmenn Garðyrkjuskóla Íslands:
Gunnar Þorgeirsson, sími 892 7309
Berglind Ásgeirsdóttir, sími 822 7639
Heiðar Smári Harðarson, sími 697 5599

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir