Gauragangur í kvöld

Nú í vikunni var Gauragangur frumsýndur fyrir nærri fullu húsi og útlit fyrir að sýningar fari  vel af stað þar sem leikritið fékk góða gagnrýni frumsýningagesta. Önnur sýning verður í kvöld og hefst klukkan 20:00.

 

Leikritið fjallar um töffarann og erkiunglingurinn Orm Óðinsson, höfuðsnilling íslenskrar unglingamenningar og áhorfendur kynnast vinum hans og óvinum, hugsjónum, hugmyndunum, orðsnillinni, fjölskyldunni, ljóðunum, skólanum og bannsettri ástinni. Fylgst er með óborganlegum tilraunum Orms við að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá! Gauragangur er þroskasaga skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar og er eftir Ólaf Hauk Símonarson.

Hátt í 80 nemendur koma að sýningunni með einhverju móti og eru allir hvattir til að koma á þessa stórskemmtilegu uppsetningu af þessu vinsæla leikriti.

 

Næstu sýningar:

  • 2. sýning föstudaginn 18. nóvember kl. 20
  • 3. sýning sunnudaginn 20. nóvember kl. 17
  • 4. sýning sunnudaginn 20. nóvember kl. 20
  • 5. sýning þriðjudaginn 22. nóvember kl. 20
  • 6. sýning miðvikudaginn 23. nóvember kl. 20
  • 7. sýning fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20
  • 8. sýning föstudaginn 25. nóvember kl. 20

Miðapantanir í síma 455 8070 milli kl. 16 og 18 alla sýningardagana. Miðaverð er kr. 1600 fyrir meðlimi NFNV og 12 ára og yngri en 2200 fyrir aðra.

Fleiri fréttir