Geks áfram sinn veg hjá Tindastól
Lettneski leikmaðurinn Davis Geks hefur samið við Körfuknattleiksdeild Tindastóls um að leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
Geks leikur sem skotbakvörður og kom til Tindastóls á miðju síðasta tímabili.
Hann varð Íslandsmeistari með liðinu og skilaði að meðaltali 9,6 stigum, 3,3 fráköstum og 1,8 stoðsendingu í leik.
/SMH
Fleiri fréttir
-
Tea Lundmark semur við Tindastól – Skellur í Lengjubikarnum
Stólastúlkur eru komnar með nýjan markvörð til að verja mark sitt í Lengjudeildinni í sumar en Tea Lundmark hefur skrifað undir samning við Tindastól. Hún hefur spilað í Svíþjóð allan sinn feril, er mætt til landsins og komin með leikheimild fyrir fyrsta leikinn í Lengjubikarnum.Meira -
Níu lið mæta til leiks í reiðhöllina
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 08.02.2026 kl. 18.25 oli@feykir.isMeistaradeild KS í hestaíþróttum hefst í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki miðvikudaginn 11. febrúar kl 18:00 þar sem keppt verður i fjórgangi. Í MD KS er keppt í átta mismunandi greinum og stendur keppni fram á vor; alls sex keppnisdagar en lokakvöldið verður 17. apríl sem er föstudagur í Sæluviku. „Í vetur mæta níu lið til leiks og því 27 keppendur í hverri grein þar sem þrír knapar úr hverju liði mæta til leiks, nema i gæðingalist þar sem tveir knapar úr hverju liði taka þátt i þeirri grein. Það eru þónokkuð margir nýir knapar sem mæta til leiks í vetur og verður gaman að fylgjast með þeim spreyta sig á þessu sviði,“ segir Sigurlína Erla Magnúsdóttir mótsstjóri Meistaradeildar KS í samtali við Feyki.Meira -
Fer mjúkur inn í daginn með Karen í Carpenters í eyrunum / EYSTEINN ÍVAR
Þó Eysteinn Ívar Guðbrandsson sé nú bara á 25. ári þá er eiginlega mesta furða að Feykir sé ekki löngu búinn að plata hann í að svara Tón-lystinni, enda kappinn búinn að vera viðriðinn leik og söng frá unga aldri. Hans hljóðfæri er píanó en hann segir þó sjálfur að aðalhljóðfærið hans sé röddin. Eysteinn, sem er fæddur árið 2001, er Króksari og hefur búið þar alla tíð. „Ég er sonur þeirra Guðbrands Jóns Guðbrandssonar og Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur.Meira -
Hundurinn sem aldrei verður þreyttur | Ég og gæludýrið mitt
Labrador hundar eru meðal vinsælustu hundategunda í heiminum í dag og er engin furða því hér eru á ferðinni vingjarnlegir, greindir, leiknir og geðgóðir hundar sem eru góðir fjölskylduhundar og miklir vinnuhundar. Labrador, eða Labbi eins og tegundin er stundum kölluð, eru meðal þeirra hunda sem eru hvað fljótastir að læra og eru miklir sundkappar enda voru þeir upphaflega ræktaðir til þess að sækja bráð skotveiðimanna í vatn og til brúks á andaveiðum.Meira -
„Lét mig oft rekja upp ef henni fannst þetta ekki nógu vel gert“
Kristín Jónsdóttir eða Stína býr á Króknum ásamt manni sínum honum Ingólfi Arnarsyni og eiga saman þrjú uppkomin börn, sex barnabörn og eitt barnabarnabarn. Stína er hætt að vinna og Ingólfur líka svo þau eru farin að njóta þess bara að lifa og leika sér.Meira
