Gengið á Ennishnjúk í dag
í dag er áformað að ganga á Ennishnjúk við Hofsósi og verður lagt upp kl. 11:00. Tímasetning getur þó breyst með stuttum fyrirvara, vegna veðurs. Allir sem vettlingi geta valdið eru boðnir velkomnir í gönguna og er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 892-5110.
Það eru Þorsteinn Jakobsson (Fjalla-Steini) og Bragi Unnsteinsson sem standa fyrir göngunni og vonast þeir til að fá fylgd einhverra heimamanna og nærsveitunga. Í gær gengu þeir félagar á Vatnsnesfjall, eða Þrælfell, um 20 km leið sem sóttist nokkuð vel þrátt fyrir snjó þar uppi, kulda og nokkuð erfið skilyrði. Meðfylgjandi mynd er tekin í þeirri ferð.
„Þessi fjöll sem við erum að ganga verða í bókinni Íslensk Bæjarfjöll sem verður gefin út til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Fjallagarpar og gyðjur munu um ókomna framtíð standa fyrir söfnun fyrir góð málefni. Ég minni á söfnunarbaukana fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem verður í Kaupfélaginu Hofsósi,“ sagði Steini í samtali við Feyki. Fjallað verður um verkefnið í næsta tölublaði Feykis.