Gestanemi í Rannsóknarsetrinu

Dagana 9. til 22. júní dvelur doktorsneminn Sean Lawing á Skagaströnd ásamt fjölskyldu sinni og vinnur að rannsóknum sínum á bókasafni Halldórs Bjarnasonar hjá Rannsóknasetri Háskóla Ísland á Norðurlandi vestra. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Sean  er doktorsnemi við  íslenskudeild Háskóla Íslands og í ritgerð sinni: "Disfigurement in Old Norse-Icelandic Law and Literature", fjallar hann um ofbeldislýsingar í Íslenskum miðaldasögum og samsvarandi framsetningu þeirra í íslenskum og norskum lögum frá sama tíma.

Rannsóknarefnið sem hann vinnur að nú um stundir kallar hann: "Plotting against their Lives: fjörráð and álótsráð in Sturlunga saga." Meðfram doktorsnámi sínu starfar Sean Lawing nú sem fyrirlesari í sögu og ritun við Bryn Athyn College, PA USA.

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra hóf starfsemi á Skagaströnd í nóvember 2009 en opnaði formlega í apríl 2010. Það er eitt af þeim af setrum sem Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hefur sett upp víða um landið í þeim tilgangi að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf. Rannsóknasetrin, sem eru sjálfstæðar rannsóknarstofnanir eru jafnframt vettvangur fyrir samstarfsverkefni með sveitarfélögum, stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Rannsóknarsvið seturs á Skagaströnd er sagnfræði og fyrir því fer Lára Magnúsardóttir

Fleiri fréttir