Gestanemi í Rannsóknarsetrinu í júní

Dagana 9. til 22. júní dvelur Sean Lawing á Skagaströnd með fjölskyldu sinni og vinnur að rannsóknum sínum á bókasafni Halldórs Bjarnasonar hjá Rannsóknarsetrinu.

Sean er doktorsnemi við Íslenskudeild Háskóla Íslands og í ritgerð sinni: “Disfigurement in Old Norse-Icelandic Law and Literature”, fjallar hann um ofbeldislýsingar í íslenskum miðaldasögum og samsvarandi framsetningu þeirra í íslenskum og norskum lögum frá sama tíma.

Rannsóknarefnið sem hann vinnur að nú um stund kallar hann: “Plotting against their Lives: fjörráð and alótsráð in Sturlunga saga”. Meðfram doktorsnámi sínu starfar Sean Lawing nú sem fyrirlesari í sögu og ritun við Bryn Athyn College, PA USA. Skagaströnd.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir