Gildistími helgarpassa á Landsmót

Stjórn Landsmóts ehf. hefur tekið þá ákvörðun að breyta gildistíma helgarpassa inn á Landsmótið á Vindheimamelum. Þeir taka því gildi kl. 18.15 föstudaginn 1. júlí en ekki á miðnætti eins og áður var búið að gefa út.

Hægt verður að kaupa miða við hliðið inn á Vindheimamela en einnig er fólki bent á til að forðast biðraðir er enn hægt að kaupa miða á www.landsmot.is/midasala og nýta sér afslátt BÍ, LH eða N1 kortanna.

Fleiri fréttir