Gísli Geir hafði betur í bráðabanaskák
Kjördæmismót í skólaskák á Norðurlandi vestra, var haldið, í Höfðaskóla á Skagaströnd, laugardaginn í gær 21. apríl. Keppendur voru 10, þrír í eldri flokki og sjö í þeim yngri. Sigurvegari í eldri flokki varð Gísli Geir Gíslason Húnavallaskóla, eftir bráðabanaskák við Guðmar Magna Óskarsson Húnavallaskóla, en þeir urðu jafnir í mótinu með 3 vinninga af 4.
Yngri flokkinn vann Hilmar Logi Óskarsson Húnavallaskóla með fullu húsi, 6 vinningum. Annar varð Halldór Broddi Þorsteinsson Árskóla með 5 vinninga og þriðji Gunnar Ásgrímsson Árskóla með 4. Sigurvegarar unnu sér þátttökurétt í Landsmóti í skólaskák, sem haldið verður í Stórutjarnarskóla í Suður-Þingeyjarsýslu, 3. – 6. maí. Skákstjóri var Jón Arnljótsson.