Gjörningar og kaffi

Opið hús verður hjá  Nes listamiðstöð á Skagaströnd  fimmtudaginn 26. júlí nk. Í boði er spennandi og fjölbreytt dagskrá og við vonum að veðrið verði gott, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni. - Við byrjum á efstu hæð Gamla frystihússins við Spákonufellshöfða með gjörningi. Hann hefst stundvíslega kl. 16.00 og stendur til 16.30. Á eftir má sjá leifarnar af gjörningnum sem listræna innsetningu. Kl. 16:30 verður kannski einnig sýnd lítil vídeó innsetning  á öðrum stað í Gamla frystihúsinu.

Þá er tilvalið að ganga inn eftir ströndinni að kaffihúsinu Bjarmanesi þar sem hljóðlistamaðurinn Askel Strimm mun nýta vindinn til að vera með hljóð-gjörning. Eftir það er öllum boðið að koma í opna vinnustofu í listamiðstöðinni sjálfri að Fjörubraut 8 og skoða og þiggja veitingar.

Fleiri fréttir