Glæsileg frumsýning Óperudraugsins
Frumsýning Óperudraugsins var um síðustu helgi og má með sanni segja að hér hafi verið á ferðinni slík glæsisýning að lengi verður í minnum haft eins og einn áhorfandinn orðaði það. Allir sem að sýningunni komu sýndu mikla fagmennsku í söng og leik en að öðrum söngvurum ólöstuðum heillaði Dagrún Ísabella Leifsdóttir áheyrendur svo að hún lagði salinn að fótum sér. Leikhúsgestir þökkuðu fyrir sýninguna með langvinnu lófaklappi í lok sýningarinnar enda glæsisýning þarna á ferðinni.
Næsta sýning verður í Reykjavík laugardaginn 7. maí í Tjarnarbíói þannig að þeir sem misstu af fyrstu sýningunni geta séð Óperudrauginn í Tjarnarbíói eða í Hofi, Akureyri 15. maí.