Glæsileg gjöf frá Gærunum

Á vef Húnaþings kemur fram að í sumar hafi íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga borist vegleg gjöf frá Gærunum, en þær halda úti nytjamarkaðinum á þar á bæ. Var þetta í þriðja skiptið sem íþróttamiðstöðin naut góðs af því góða starfi sem Gærurnar halda úti.
Í þetta skiptið afhentu Gærurnar íþróttamiðstöðinni stafræna klukku fyrir sundlaugarsvæðið og mun klukkan gera gestum kleift að fylgjast með raunhita bæði í sundlaug og nuddpotti, útihitastigi og hvað tímanum líður.
Áður höfðu Gærurnar gefið íþróttamiðstöðinni hjartastuðtæki og vindur fyrir sundföt.

Slagorð Gæranna „Eins rusl er annars gull“ gerir þeim mögulegt að gefa aftur út í samfélagið og hafa gestir íþróttamiðstöðvarinnar sannarlega notið góðs af.

/IÖF

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir