Glæsilegar árshátíðarmyndir
Hefðbundin kennsla féll niður í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í síðustu viku vegna opinna daga sem komu í staðinn. Þá fengu nemendur að kynnast öðrum hliðum mannlífsins á hinum ýmsu viðburðum sem boðið var upp á. Í lok vikunnar var árshátíð skólans haldin og var öll hin glæsilegasta. Myndrún ehf / Rúnar Þór var með myndavélina á lofti og smellti af glæsilegu fólki.
Ljósm; Myndrún ehf / Rúnar Þór
Meðal þess sem nemendur gátu kynnt sér var starfsemi Feykis og mættu sjö nemendur sl. föstudag og fengu ýmis verkefni. Verða þau með opnu í næsta Feyki sem kemur út fimmtudaginn 7. mars.
Hæt er að nálgast fjölda mynda frá árshátíðinni HÉR
Ljósm; Myndrún ehf / Rúnar Þór
Ljósm; Myndrún ehf / Rúnar Þór