Góð gjöf til skólans
Þessir hressu krakkar í Grunnskólanum á Blönduósi, Karen Sól, Júlía, Þórunn Erla og Pétur Arnar héldu tombólu í Samkaup í september og færðu skólanum sínum ágóðan. Vildu þau að peningunum yrði varið í tölvudót eða bækur á bókasafnið.
Gott framtak hjá krökkunum og fengu þau miklar þakkir frá skólastjórnendum fyrir þessa gjöf til skólans.
