Góð gjöf til Styrktarsjóðs Húnvetninga
Í síðustu viku, færðu nemendur í 9. bekk Blönduskóla á Blönduósi Styrktarsjóði Húnvetninga andvirði jólagjafa litlu jólanna. Einn stjórnarmanna, Gunnar Tryggvi Halldórsson, kom í tíma til krakkanna og veitti gjöfinni viðtöku.
Venjulega skiptast nemendur á jólagjöfum á litlu jólunum en í ár ákváðu nemendurnir að gefa andvirði gjafanna til góðs málefnis. Styrktarsjóðurinn varð fyrir valinu „þar sem hann styður fólk á svæðinu okkar,“ svo orð þeirra séu notuð. Fylgdu gjöfinni óskir um að hún komi að góðum notum.
Gunnar nýtti tækifærið og kynnti sjóðinn og starfsemi hans örlítið, ásamt því að segja frá hvaða félög og samtök stæðu að honum. Var hann ekki í nokkrum vafa um að gjöfin kæmi sér vel, enda allir styrkir til sjóðsins vel þegnir.
/Blönduskóli.is
