Góð mæting á æfingasvæði Markviss á Húnavöku
Skotfélagið Markviss var með opinn dag sl. laugardag í tilefni Húnvöku. Þar var fólki boðið að skjóta úr haglabyssu og loftriffli. Bogveiðifélag Íslands var svo með kynningu á bogfimi, en stefnan hjá Markviss er að koma upp bogfimideild innan félagsins. Á sunnudeginum var svo haldið eitt námskeið á svæðinu og að sögn Snjólaugar M. Jónsdóttur, formanns Skotfélagsins var gaman að fylgjast með hversu góðum árangri gestir náðu á stuttum tíma.
Veður var milt og gott og stemmingin góð. Á annað hundrað manns kíktu á svæðið og fengu að prófa og kynna sér aðstöðu félagsins, meðal þeirra var fréttafólk frá sjónvarpsstöðinni N4.
,,Það var ekki annað að sjá en að allir færu ánægðir frá okkur eftir að hafa prófað og spjallað. Margir voru að koma á skotíþróttasvæði í fyrsta skipti á ævinni og margir aldrei prufað skotvopn áður. En flestir komu og prófuðu alla vega að skjóta á kyrr skotmörk við jörð. Aðrir settu allt í þetta og reyndu við fljúgandi skotmörk, flest allir með góðum árangri. Gaman var að sjá hversu margar konur mættu á svæðið og gáfu þær karlmönnunum ekkert eftir. Viljum svo sjá enn fleiri konur að ári,“ segir Snjólaug.
Stefnt er að þessi opni dagur verði árlegur viðburður og hluti af Húnavökudagskrá. Félagið vill vekja athygli á starfinu, íþróttinni og þeim búnaði sem notast er við.
Framundan hjá Skotfélaginu er Íslandsmeistaramót á skotíþróttasvæði Skotfélags Suðurlands, en Íslandsmeistaramótin eru að jafnaði fjölmennustu mót sumarsins. Nú þegar hafa þrír keppendur frá Markviss skráð sig á mótið en það eru þau Guðmann Jónsson, Brynjar Þór Guðmundsson og Snjólaug M. Jónsdóttir. Kvennakeppnin þetta sumarið er hörð og ekkert gefið eftir í baráttunni um Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitilinn.
Um miðjan ágúst verður Norðurlandsmeistaramótið haldið á Blönduósi og hvetur félagið bæjarbúa til að fjölmenna á svæðið og hvetja sitt fólk.
Skotfélagið minnir á að opnar æfingar eru öll miðvikudagskvöld og er öllum velkomið að koma og skjóta eða bara kíkja í kaffi og létt spjall.
Myndir frá Skotfélaginu Markviss
.