Góðar heimtur í Sauðadal
Heimtur voru góðar í Sauðadal í Húnavatnssýslu í gærkvöldi eða um 500 kindur og lömb. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar eru þeir sem tóku þátt í leitum afar ánægðir með árangurinn.
„Nú á ellefta tímanum í kvöld er verið að reka fé niður úr Sauðadal. Þar hafa björgunarsveitamenn úr Blöndu á Blönduósi og Strönd á Skagaströnd, ásamt bændum af svæðinu leitað að fé síðan snemma í morgun,“ segir í frétt á heimasíðu Landsbjargar frá því seint í gærkvöldi.
Í dag mun mannskapurinn úr þessum sveitum væntanlega vera í hvíld eftir annasama viku en margir þeirra munu taka þátt í smalamennsku í Svartárdal á laugardag.