Góðar viðtökur við styrktarsýningu á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
25.04.2014
kl. 08.43
Á Húnahorninu í dag kemur fram að sýningum er lokið á Dagbókinni hans Dadda í uppsetningu Leikfélags Blönduóss og dreifnámsins í A-Hún. Haldin var sérstök aukasýning til styrktar Páli Þórðarsyni og fjölskyldu hans, en Páll glímir við erfið veikindi.
Viðtökur voru frábærar en allur aðgangseyrir og aðrir styrkir sem bárust rann óskipt til fjölskyldunnar.