Góður aðalfundur Skógræktarfélags Íslands

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn um sl. helgi á Blönduósi. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa með fróðlegum erindum var farið í vettvangsferðir.

Á Húnahorninu segir að á laugardeginum var t.d. komið við í Gunnfríðarstaðaskógi þar sem boðið var upp á veitingar af ýmsu tagi. Þar var frumflutt var ljóð um Gunnfríðarstaðaskóg sem Ingibjörg Eysteinsdóttir á Beinakeldu orti fyrir Skógræktarfélag A-Hún í tilefni að 50 ár eru síðan fyrstu trjáplöntunum var plantað á Gunnfríðarstöðum.

Þá var skrifað undir  viðbótar landgræðsluskógasamning fyrir Vatnahverfi og var samningurinn undirritaður af Ágústi Þór Bragasyni fyrir hönd Blönduósbæjar, Páli Ingþóri Kristinssyni fyrir hönd Skógræktarfélags A-Hún og Magnúsi Gunnarssyni fyrir hönd Skógræktarfélags Íslands.

Við bæjarrústir Gunnfríðarstaða var afhjúpað skilti til heiðurs Helgu Jónsdóttur og Steingrími Davíðssyni sem gáfu skógræktarfélaginu stóran hluta jarðarinnar fyrir liðlega 50 árum. Skiltið var afhjúpað af fulltrúum afkomenda þeirra hjóna.

Fleiri fréttir