„Góður dagur á Norðurlandi vestra“

„Ég er afar glaður að þetta skuli hafa klárast með þessum hætti. Það er ekki annað hægt, þetta verða rúmlega þrjátíu störf og 316 milljónir, þannig að það er alveg ljóst að þetta er veruleg innspýting inn á svæðið. Þetta er góður dagur,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, formaður Norðvesturnefndarinnar, um þá ákvörðum Ríkisstjórnarinnar, sem tekin var í morgun, að samþykkja 15 af 30 tillögum sem Norðvesturnefndin setti fram í skýrslu í desember á síðasta ári.
„Við fórum af stað með það að markmiði að koma með hugmyndir að verkefnum sem hægt væri að flytja á Norðurland vestra og settum þær fram í skýrslu. Nú hefur Ríkisstjórnin verið að nota tímann í að fara yfir þetta og skoða hvaða verkefni þeir treysta sér í að fara með okkur og þetta er niðurstaðan,“ sagði Stefán Vagn í samtali við Feyki nú fyrir stundu.
Stefán Vagn segir tillögurnar allar hafa snúist um verkefni sem vitað var að væri gerlegt að flytja norður eða stofna til á svæðinu og erfitt sé að gera upp á milli þeirra sem voru samþykktar og ekki samþykktar. „Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta væri samtal milli sveitarfélaganna og ríkisstjórnarinnar um hvað af þessum verkefnum þeir væru tilbúnir að fara í og þetta er niðurstaðan. Henni ber að fagna, við erum mjög ánægð með þessi verkefni og þökkum fyrir þau, enda var gríðarlega mikilvægt að við fengjum innspýtingu inn á Norðurland vestra, sem nú er orðin að veruleika.“
Formlegum störfum nefndarinnar lauk þegar skýrslunni var skilað til ríkisstjórnarinnar fyrir um ári síðan og að sögn Stefáns Vagns er tekur útfærslan á tillögunum nú við. „Ég hlakka til að fylgjast með þessum verkefnum verða að veruleika. Ég vil sömuleiðis nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem kom að þessari vinnu.“
Tilgangur aðgerðanna er að styrkja innviði, atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra með margvíslegum aðgerðum. „Markmiðið með þeim er að skapa þjóðhagslegan ávinning og aðstæður svo góðum framtíðarstörfum á svæðinu fjölgi,“ segir í tilkynningu á vef Forsætisráðuneytisins.
Með aðgerðunum er ætlunin að snúa við neikvæðri byggðaþróun á Norðurlandi vestra og efla mannlíf á svæðinu. Sem kunnugt er hefur íbúum á svæðinu fækkað mikið á undanförnum áratugum og útsvarstekjur sveitarfélaganna af hverjum íbúa undir landsmeðaltali. Þá er menntunarstig í landshlutanum lægra en í öðrum landshlutum og hagvöxtur minni.
Ólíkt ýmsum öðrum landshlutum hefur Norðurland vestra ekki notið góðs af sértækum aðgerðum stjórnvalda á undanförnum árum. Þar má nefna Vestfirði (2011), Austurland (2012) og Suðurland (2013). Þá hafa stjórnvöld gert fjóra ívilnunarsamninga vegna nýfjárfestinga á Suðurnesjum frá árinu 2010.
„Ríkisstjórnin telur mikilvægt að stuðla að byggð í öllu landinu og tryggja jafnræði milli landshluta. Aðgerðirnar sem samþykktar voru á ríkisstjórnarfundi í morgun eru liður í því,“ segir ennfremur í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Ráðgert er að störfum á Norðurlandi vestra fjölgi um 30 vegna aðgerðanna, sem eru þessar:
Verkefni |
Lýsing |
Fjölgun verkefna við Háskólann á Hólum |
Skólanum verði falið að varðveita og bæta ásýnd Hóla í Hjaltadal sem sögu- og ferðamannastaðar, kynna sögu staðarins, gæta sögulegra minja og skapa gott umhverfi fyrir afmarkaða starfsemi, t.d. á sviði ferðaþjónustu og safna- og menningarstarfs. |
Fjölbreyttara nám við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra |
Menntun á sviði matvælavinnslu, sláturiðnaðar o.fl. verði efld. |
Atvinnu- og nýsköpunarsjóður fyrir Norðurland vestra |
Stuðningskerfi við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja vinna að nýsköpun verði eflt með stofnun atvinnu- og nýsköpunarsjóðs fyrir Norðurland vestra. |
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri komið á laggirnar á Sauðárkróki |
Vinnuaðstaða verði sköpuð á Sauðárkróki fyrir frumkvöðla, enda séu verkefni þeirra líkleg til að efla byggðaþróun, fjölga atvinnutækifærum og auka fjárfestingar á svæðinu. |
Aðstaða Landhelgisgæslunnar bætt |
Vegna aukinnar skipaumferðar fyrir Norðurlandi hefur verkefnum Landhelgisgæslunnar fjölgað á svæðinu. Kannaður verður ávinningur þess að koma upp varanlegri starfsstöð og heimahöfn fyrir eitt skip Landhelgisgæslunnar á Sauðárkróki, þar sem m.a. verði horft til eftirlits- og björgunargetu á svæðinu og viðbragðsgetu vegna mengunarslysa. |
Rannsóknir á selastofninum auknar |
Þörf er á frekari rannsóknum á selastofnum við Ísland. Selasetrið á Hvammstanga hefur annast selarannsóknir fyrir Hafrannsóknarstofnun á undanförnum árum. |
Starfsemi Fæðingarorlofs-sjóðs efld |
Mikilvægt er að efla starfsemi Fæðingarorlofssjóðsog liður í því er að sinna betur eftirliti með greiðslum úr sjóðnum. Störfum verði fjölgað til að sinna verkefninu. |
Hvíldarinnlagnir á Heilbrigðisstofnunum Vesturlands og Norðurlands |
Hvíldarrýmum við Heilbrigðisstofnanir Vesturlands á Hvammstanga og Norðurlands á Sauðarkróki verði fjölgað þar sem sjúklingum bjóðist hvíldarinnlögn, t.d. að lokinni aðgerð eða annarri læknismeðferð. |
Áreiðanleikakönnun á hagkvæmni lífdísil-framleiðslu á Blönduósi |
Framleiðsla á lífdísil úr dýrafitu hefur verið til skoðunar í Austur-Húnavatnssýslu. Framkvæma þarf áreiðanleikakönnun á hagkvæmni slíkrar starfsemi, sem gæti átt samleið með annarri atvinnustarfsemi á svæðinu. |
Aukin starfsemi þekkingarseturs á Blönduósi
|
Markmið þekkingarsetursins er að stuðla að aukinni fjölbreytni atvinnulífs með fræðslustarfi, eflingu háskólamenntunar, vísindarannsóknum og nýsköpunarstarfi. Bæta aðgengi að námi og aðstoða rannsóknarnema og vísindamenn við að koma á tengslum og útvega aðstöðu til vísindastarfs auk þess að stuðla að auknu samstarfi og samþættingu menntunar, rannsókna og fræðastarfs. |
Miðstöð fyrir frumkvöðla í matvælavinnslu komið á laggirnar |
Sköpuð verði aðstaða fyrir frumkvöðla í matvælavinnslu og lítil fyrirtæki til að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi, í samstarfi við Háskólann á Akureyri og BioPol ehf. á Skagaströnd. Ráðgert er að miðstöðin hafi öll tilskilin leyfi og tækjabúnað til matvælavinnslu. |
Viðhaldsframkvæmdir við Kvennaskólann á Blönduósi
|
Skólabyggingin er komin til ára sinna og viðhaldsþörf er brýn. Þekkingarsetur er til húsa í byggingunni, sem er farin að standa starfseminni fyrir þrifum vegna slælegs ástands, auk þess sem húsið er friðað. |
Starfsstöð Minjastofnunar Íslands á Sauðárkróki verði falin aukin verkefni
|
Eftirlit með framvindu verkefna sem fá styrk úr húsafriðunar- og fornminjasjóði verði á ábyrgð starfsstöðvar á Sauðárkróki. Hún fái umsjón með rannsókna sem ætlað er að staðfesta umfang og eðli minja, halda heildarskrár um friðaðar og friðlýstar fornleifar, mannvirki o.fl. Hafin verði vinna við að efla og samþætta minja- og safnastarf á Norðvesturlandi. |
Nýtt skjalasafn utanríkisráðuneytisins |
Vegna fækkunar starfsfólks í sendiskrifstofum Íslands erlendis hefur nauðsynleg skjalaumsýsla setið á hakanum. Ráðgert er að færa umsýsluna til nýrrar starfsstöðvar þýðingarmiðstöðvar utanríkisráðuneytisins á Sauðárkróki. |
Ofangreindar aðgerðir byggja á tillögum landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra og umsögnum viðeigandi ráðuneyta. Áætlaður kostnaður vegna þeirra er 316 milljónir króna.
„Ég fagna þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem er eðlilegt framhald af aðgerðum víða um land í þeim tilgangi að styrkja byggð í landinu öllu. Allir landshlutar hafa mikilvægu hlutverki að gegna fyrir heildina og stjórnvöld eiga að taka tillit til ólíkra þarfa á hverju svæði fyrir sig. Þannig styrkjum við samfélagið allt,” segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Hér er að finna skýrslu sem var unnin af Norðvesturnefndinni og var skilað til forsætisráðherra. Í henni eru 25 tillögur nefndarinnar. Eftir að hafa leitað umsagna fagráðuneyta og haft samráð við meirihluta fjárlaganefndar voru lagðar fram 15 tillögur ásamt umsögnunum til lokaumfjöllunar og samþykktar ríkisstjórnar.