Göngubrú byggð yfir Blöndu

Til stendur að byggja göngubrú á Blönduósi en í sumar hafa Vegagerðin og Rarik verið í viðræðum um að sameinast um byggingu brúarinnar, með aðkomu Blönduósbæjar, yfir Blöndu til að koma heitavatnslögninni yfir ánna.

Í fundargerð bæjarstjórnar frá 11. september sl. kemur fram að fulltrúar Blönduósbæjar áttu fund með verkfræðingum Vegagerðarinnar þar sem farið var nánar yfir staðsetningu göngubrúarinnar, sem verður staðsett 100 metrum fyrir neðan núverandi brú, er kemur fram í frétt á Rúv.is. Áætlanir gera ráð fyrir því að smíðin hefjist næsta sumar.

Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduóssbæjar, segir í samtali við Rúv að íbúar bæjarins hafi lengi óskað eftir göngubrú yfir Blöndu sem tengja myndi bæjarhlutana betur saman. Umræða um nýja hitaveitulögn Rarik hefur nú ýtt hugmyndinni áfram en gert er ráð fyrir að brúin verða nýtt til þess að koma lögninni yfir ána og um leið mun umferð gangandi vegfarenda færast af þjóðveginum og yfir á göngubrúna.

Fleiri fréttir