Gönguferð á Sturlungaslóð

Gönguferð á Sturlungaslóð verður farin fimmtudaginn 26. júní nk. Mæting er við Miklabæ kl. 19:00 og gengið verður niður að Vötnunum, upp að Víðivöllum og í Örlygsstaði og þaðan til baka að Miklabæ.

Gangan tekur um 2 og hálfan til 3 tíma. Leiðsögumaður er Helgi Hannesson. Allir eru velkomnir og frítt er í gönguna.

Fleiri fréttir