Gönguhópur stofnaður á Blönduósi

Sigurjón Guðmundsson á Blönduósi hefur mikinn áhuga fyrir stofnun gönguhóps, eins og tíðkast í mörgum betri bæjarfélögum, eins og segir í auglýsingu frá honum í Glugganum í dag. Allir eru velkomnir í hópinn, ekkert aldurstakmark er sett, enda á ekkert kynslóðarbil að vera til þegar holl hreyfing er annarsvegar.

Allir eiga að geta fundið sinn göngutakt við hæfi og þeir sem hafa áhuga á verkefninu mæti við Ósbæ þriðjudaginn 24. mars kl. 20:00.

Kjörorðið er, göngum saman, höfum gaman, segir Sigurjón sem hvetur áhugasama til að hafa samband við sig í síma 452 4993, GSM 862 8603.

Fleiri fréttir