Gott sumar hjá húnvetnsku skotíþróttafólki
Þá er löngu og ströngu keppnistímabili í leirdúfunni lokið þetta sumarið. Síðasta mótið fór fram helgina 7.-8. september þegar Bikarmót STÍ var haldið á Iðavöllum í Hafnarfirði. Líkt og svo oft áður í sumar voru veðurguðirnir í aðalhlutverki á laugardeginum (en vindhraði fór í 24m/sek á nálægri veðurstöð) og hafði það mikil áhrif á skor keppenda á mótinu.
Keppni í kvennaflokki var æsispennandi en fyrir mótið var Snjólaug M. Jónsdóttir (Markviss) efst að stigum í bikarkeppninni með 45 stig, næst henni kom Dagný Hinriksdóttir (SR) með 44 og þriðja var Helga Jóhannsdóttir (SIH) með 43 stig.
Snjólaug var með hæsta skor í undankeppninni og báðum úrslitum og varð því bikarmeistari kvenna 2013 með fullt hús stiga eða 60 stig, önnur varð Helga Jóhannsdóttir með 57 stig og Dagný hafnaði í þriðja sæti með sama stigafjölda.
Í karlaflokki var Húnvetningurinn Guðlaugur Bragi Magnússon (SA) efstur að stigum með 45 stig, næstur honum kom Guðmann Jónasson (Markviss) með 42 stig og þriðji Húsvíkingurinn Sigurður Unnar Hauksson með 41 stig.
Eftir fyrri dag voru þeir Guðmann og Sigurður jafnir með 6 stiga forustu á næstu menn, Guðlaugur var í 3-4 sæti ásamt Erni Valdimarssyni (SR). Seinni daginn tók Sigurður Unnar örugga forustu og fór inn í undanúrslit á hæsta skori mótsins,Guðmann var annar og Guðlaugur þriðji.
Svo fór að Guðlaugur Bragi skaut manna best í undanúrslitum og því ljóst að enginn gæti náð honum að stigum. Hann mætti svo Erni Valdimarssyni í úrslitum um sigur á mótinu þar sem Örn hafði betur. Sigurður Unnar hafnaði í 3 sæti, Jakob Þór Leifsson (SIH) í fjórða og Guðmann í fimmta.
Staðan í stigakeppninni varð því sú að Guðlaugur Bragi varð Bikarmeistari karla með 59 stig, annar varð Sigurður Unnar með 54 stig og Guðmann þriðji líkt og á Íslandsmeistaramótinu með 53 stig.
Athygli vekur frábær árangur norðlenskra keppenda í sumar, en þrír stigahæstu skotmenn landsins koma frá skotfélögum norðan heiða, auk þess sem Snjólaug M. Jónsdóttir vann alla titla sem í boði voru í kvennaflokki í sumar.
Alls voru 12 mót á mótaskrá Skotíþróttasambands Íslands þetta sumarið, þar af 8 þeirra sunnan heiða. Skotfélagið Markviss átti samtals 32 keppendur á 11 af þessum 12 mótum, það er því óhætt að segja að húnvetnskt skotíþróttafólk hafi farið vítt og breitt um landið þetta sumarið, enda uppskeran eftir því