Græju-dagur Tengils og Nýherja

Græju-dagur Tengils og Nýherja verður laugardaginn 2. júní næstkomandi. Starfsmenn Tengils og Nýherja verða í dúndurstuði í Kjarnanum á Sauðárkróki en þar verður margt spennandi í gangi allan daginn, m.a. ljósmyndamaraþon og keppni í Colin McRae: Dirt. Þátttakendur eiga mögueika á að vinna til veglegra verðlauna.

Einnig getur þú mætt í Tengil með myndina þína og fengið hana útprentaða. Sérfræðingar veita ráðleggingar um val á myndavélum, linsum, prenturum, pappír og tölvum svo fátt eitt sé nefnt.

Ef þig langar til að taka þátt í Ljósmyndamaraþoni Græju-dagsins þá mætir þú með stafrænu myndavélina þína í verslun Tengils Kjarnanum. Skráning hefst kl. 13 og stendur maraþonið yfir fram eftir degi og lýkur kl. 16. Þáttakendur fá afhentar allar upplýsingar um myndefni og leikreglur maraþonsins. Vegleg verðlaun i boði.

Þá verður keppt í Colin McRae: Dirt og um að gera fyrir þá sem eru flinkir í tölvuleikjum að taka þátt. Skráningar hefjast kl.13 en keppni hefst kl. 14. Spennandi verðlaun í boði.

Græjuleikur Tengils verður í gangi þar sem fjöldi veglegra vinninga er í boði. Má þar nefna prentara, mýs, minniskort, USB lykla og margt margt fleira. Eina sem þarf að gera er að skrá sig á þátttökuseðil sem er hægt að nálgast í afgreiðslu Tengils og skila miðanum svo í græjupott þarsem nöfn vinningshafa verða dregin út.

Fleiri fréttir